Hugbúnaðarlausnir
Eyn þróar sérsniðnar stafrænar lausnir í Power Platform og sem vef- og applausnir. Í samstarfi við viðskiptavini okkar búum við til lausnir sem hagræða verkferlum, auka framleiðni og bæta innri ferla.
Við sköpum verðmæti með þér
Við viljum vinna náið með okkar viðskiptavinum að þróun lausna sem bæta rekstur og auka árangur. Okkar markmið er að smíða traustar lausnir sem virka.
Það sem við gerum fyrir þig
Eyn þróar sérsniðnar stafrænar lausnir í Power Platform og sem vef- og applausnir. Í samstarfi við viðskiptavini okkar búum við til lausnir sem hagræða verkferlum, auka framleiðni og bæta innri ferla.
Gervigreind er orðin raunverulegt verkfæri í daglegum rekstri — en árangurinn ræðst af því hvernig hún er innleidd. Við þjálfum starfsfólk í hagnýtri notkun gervigreindar og smíðum sérsniðnar lausnir sem sjálfvirknivæða ferla í rekstrinum.
Sjá nánar >Power BI er öflugt greiningartól frá Microsoft sem umbreytir gögnum í skýr og gagnvirk mælaborð og skýrslur. Lausnin styður við upplýsta ákvarðanatöku með því að sameina gögn, greina þróun og miðla upplýsingum á einfaldan hátt.
Eyn hannar og smíðar nútímalegar heimasíður sem sameina skýra hönnun, góða notendaupplifun og tæknilega vönduð vinnubrögð.
Samþætting upplýsingakerfa eykur skilvirkni og bætir þjónustu. Sérfræðingar Eyn búa yfir víðtækri reynslu af slíkum samþættingum og nýta áreiðanlega tækni til verksins.
Eyn styður við skipulagningu og stýringu verkefna frá upphafi til enda. Við vinnum með skýran fókus á markmið, framvindu og árangur, tryggjum góða forgangsröðun og hjálpum til við að halda verkefnum á réttri braut.
Við erum upplýsingatæknifyrirtæki með öflugt teymi sérfræðinga sem búa yfir víðtækri reynslu af innleiðingu og smíði hugbúnaðarlausna fyrir fjölbreyttar atvinnugreinar. Við höfum sérlega mikla þekkingu á matvælaframleiðslu og skiljum vel þær kröfur og áskoranir sem einkenna greinina. Í nánu samstarfi við viðskiptavini okkar þróum við virðisaukandi lausnir sem miða að því að hámarka árangur.
Við leggjum ríka áherslu á að smíða traustar lausnir sem virka í raun og að skilja þarfir hvers viðskiptavinar til fulls.









